Tuesday, October 17, 2006

Bernskan á vogarskálum - grein í mbl. 8/10

"Siggi? - Geturðu sótt stelpuna til dagmömmunnar fyrir mig? Ég þarf að vinna frameftir."
-- "Ha? Jújú, ég get reynt það. Ég þarf bara að klára bjórinn fyrst."

"Mamma? Geturðu tekið stelpuna fyrir mig um helgina? Ég ætla að fara í sumarbústað."

"Ég má ekki vera að því að elda, við förum bara á McDonald's -- þér finnst það svo gott!"

"Þessi djöfulsins leikskóli, af hverju getur hann ekki verið opinn aðeins lengur?"

"Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki þennan DVD-spilara!"

"Hvernig er það, eru ykkur ekki kenndir mannasiðir í þessum skóla!?"

"Nei, ég get ekki farið með þér í bíó. Hérna er þúsundkall, taktu svo bara símann með."

"Ertu búin að læra? Já, ókei, þá máttu fara í tölvuna."

"Sjáðu hvað ég keypti sætan bol á stelpuna, með svona Playboy-kanínu. Ég keypti stóran, þannig að hún getur notað hann alveg þangað til hún verður tíu ára."

"Er ekki hægt að gefa henni einhver lyf við þessu?"

"Af hverju fékkstu svona lágt á prófinu? Ætlarðu ekki að komast í góðan skóla?"

"Það er ekkert sem heitir, þú ferð á pilluna. Ég vil ekki að þú endir eins og ég, ólétt fyrir aldur fram og framtíðin í rúst."

"Ég get ekkert sótt hana niður á lögreglustöð, þið verðið bara að keyra hana heim."

"Hvað hef ég gert til að verðskulda svona dóttur?"